Elsa Særún 的个人资料~ eLsA sÆrúN ~照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
8月16日 Afmæli og myndirHún Veiga vísindamaður átti afmæli í gær :) Að því tilefni bakaði hún þessa stjarnfræðilega fínu köku handa vinum sínum! Hún hefur þegar sagt starfi sínu bæði sem jarðvísindakona og kennari lausu og hyggst setja á stofn kökuframleiðslu sem sérhæfir sig í afmælis og tækifæriskökum við öll tilefni.
Til hamingju með daginn í gær Veiga! Svo er ég búin að vera ýkt dugleg að setja inn myndir! Allir að kíkja á fallhlífastökksmyndirnar
4月26日 26.apríl 2007Í gær...
fór ég á sýningu! Nánar tiltekið á sýningu á verkum útskriftanema á listabraut í Borarholtsskóla. Á þessar sýningu kenndi nú ýmissa grasa en uppúr stóð vídeo/leiksýning eftir bróðir minn! Þetta atriði sem var eiginlega leik/vídeo ofið saman samdi hann, útfærði, leikstýrði, tók upp, klippti og fíneseraði alveg sjálfur! Þetta var lang flottasta atriðið enda er bróðir minn er ótrúlega klára og hrikalega flinkur og á pottþétt eftir að verða frægur kvikmyndatökumaður.
Í dag...
er nú aldeilis merkilegur dagur því að í dag eiga tvær góðar vinkonur mínar afmæli!
Til hamingju með daginn Heiða og Freyja!
Kossar&Knús
4月11日 París / ÍsafjörðurMikið ótrúlega er ég duglega að setja eitthvað skemmtilegt hérna inn! Kannski bara ágætis fyrirkomulag að hafa þá reglu að setja inn færslur í kringum jól og páska! Gæti svo hugsanlega bætt við hvítasunnu og verslunarmannhelgi! Það væru nú þó alveg 4 færslur á ári!
Annars er það helst að frétta að þessa dagana stendur yfir skipulagning á Parísarferð - án mín (ekki það að ég treð mér með á alla skipulagsfundi -opinbera sem og óopinbera) verst að ég á engan flugmiða til að troða mér með :(
Ástæða þess að ég á engann flugmiða með stelpunum til Parísar er að ég tók þá afdrifaríku ákvörðun að eyða öllum peningunum, bæði sem ég átti OG átti ekki - í nýjan bíl. Þessi bíll er reyndar mjög fínn og gott að keyra hann en mig langar samt með :'(
Þetta verður örugglega ótrúlega skemmtileg ferð (þó hún nái þvi náttúrulega aldrei til fulls þar sem ég er ekki með)! Þær eru búnar að finna aldeilis margt áhugavert sem þær ætla að skoða og sjá og labba og heyra og Veiga er búin að finna dagbók og gera listaverka-forsíðu til að skrá niður allt það skemmtilega sem hendir þær!
En það er þó smá huggun harmi gegn að þó ég sé ekki á leiðinni til Parísar er ég á leiðinni ÍSAFJARÐAR! og hver þarf París þegar hann hefur Ísafjörð! Þar fæ ég að hitta fullt af skemmtilegum bændum OG halda fyrir þá aldeilis skemmtilegt námskeið OG sofa í líkhúsi OG horfa með strákunum á einhvern æsispennandi Liverpool leik OG síðast en ekki síst kem ég út í plús - þar sem ég verð á dagpeningum - dadarammmdadaramm!
12月20日 jóla jóla jólJeiijj ég er komin í gang með sql-keyrslu sem ég trúi statt og stöðugt að sé lausn á vandamálinu sem er að stoppa mig að yfirgefa vinnuna í dag!! Ég nefnilega er að spá í að eyða smá tíma heima hjá mér til tilbreytingar og taka til! Er búin að koma öllum jólaljósum í gang EN það sést varla í þau fyrir dóti og drasli um alla íbúð :| ... hef hugsað mér að reyna að bæta úr því í kvöld - jólagjafir sem eru enn ókeyptar geta bara beðið!!
Svo í framhaldinu þarf ég að ákveða hvað ég ætla að gefa móðir minni og bróður í jólagjöf! Þau eru staðráðin í því að nánast það eina sem þau langi í OG BRÁÐ-vanti sé nýja Nintendotölvan og nýji Zelda leikurinn :| Þau eru algjör apaspil!
12月4日 Jólunum frestað um vikuKom ekki ljóstýra á hvorki aðventuljósið mitt né stofuseríuna. Sé fátt annað í stöðunni en að fresta fyrsta sunnudegi í aðventu um viku :( 11月4日 Crazy stuð...það verður Batman-McQueen-þema!
...mig vantar sárlega almennilega sleikju! 11月2日 2.nóvemberÚti er rok og rigning ... varla hundi útsigandi
...en það er allt í lagi því að í dag á ég afmæli, ég ætla bara að ímynda mér að ég sé önd og þá finnst mér þetta veður stórkostlega æðislegt :D
Það er alveg ótrúlega gaman að eiga afmæli, ég er búin að fá fullt af afmælissöngvum, kveðjum og knúsum, sms-um og símtölum sem byrjaði strax um áttaleytið í morgun! Svo á ég svo fékk ég köku og kanillengju líka :D
Ég byrjaði daginn á að fara í bootcamp í morgun eftir að hafa átt í hörku sannfæringarrökræðum við sjálfa mig undir sæng (og reyndar alla leið útí bíl) um að ég þyrfti ekki að mæta þar sem ég ætti afmæli í dag!! en náði að lokum að telja mér trú um að ég yrði svo ógurlega svakalega hress eftir 200 armbeygjur og 150 sittups að ég mætti í tímann!! Svo gaf ég vinnufélugunum beyglur og hummus og súkkulaðikex (og smá af kökunni og kanellengjunni) í kaffinu og þau sungu fyrir mig í staðinn :D
Núna ætla ég út í góða veðrið, kannski að kaupa mér púða í nýju sófana mína, koma sjónvarpssófanum fyrir niðri og kannski tengja video-ið og playstation tölvuna ... verður mest fínt :D Verst að stofuskápurinn og sófaborðið sem ég ætla að kaupa er ekki til í ikea og kemur ekki fyrr en eftir 4 - 6 vikur :( en well ... tíminn líður hratt á gervihnattaröld!
Svo ætla ég að fara á fund hjá alltmuglighed nefndinni á föstudagskvöldið - ansi fróðlegt, tískusýningu hjá tilvonandi mágkonu minni á laugardagskvöldið og kökuboð á sunnudaginn (á enn samt eftir að velja mér afmælis-diska-og-glasa-þema ... þarf greinilega að hugleiða það eitthvað í snarhasti!! ... og að vísu ákveða hvaða kökur ég ætla að baka - en hef nú minni áhyggjur af því)
en well garagó
Hafi þið það öll yndislega rosalega gott í dag!
Knús og kreyst!
Elsa Særún önd
11月1日 Hvað er málið?!Ég fór í bíó um daginn. Það er nú varla frásögufærandi svona eitt og sér nema það að þar fékk ég áfall! Þar var því skellt framaní mig eins og heilum bala af ísköldu vatni með klökum og alles að það væri hætt að framleiða GULAN STRUMPAÓPALl!!!
*grát**snöggt**hnussfusss*argGARG* Hver leyfði það? Hvenær og Af hverju í veröldinni?! Gátu þeir ekki bara hætt að framleiða hjúplakkrís eða eitthvað ... mér finnst það hvort eð er ekkert gott! Fyrst var það blár Hubba bubba, svo blár ópal og núna gulur strumpaópal! Hvað næst? Mér finnst þetta rakið svindl!
Ég keypti mér þá bara topp og popp ... næst verður örugglega ekkert popp í bíó!
10月8日 8.október
Á þessum degi fyrir 23 árum fór ég - þá rétt að verða fjögurra ára gömul í Blómaval. Þar keypti ég tvo ótrúlega flotta Flinstones leikfangabíla. Annar bíllinn var að handa mér en hinn handa nýfæddum bróðir mínum - loksins fékk ég einhvern til að leika við! Það er skemmst frá því að segja að ég lék mér ein að báðum bílunum í all nokkur ár :(
Bróðir minn frábær - næstum því jafn frábær og ég! Hann er oftast yfirmáta rólegur, þægilegur, krúttlegur og sætur og með einstaklega skemmtilegan öfugsnúinn húmor.
Þessi litli bróðir minn - sem er reyndar ekkert lítill lengur - var orðinn hærri en ég um fermingu - á 23 ára afmæli í dag!
Til hamingju með daginn gamli minn!
10月3日 FJALLGANGANI.
Urð og grjót. Upp í mót. Ekkert nema urð og grjót. Klífa skriður. Skríða kletta. Velta niður. Vera að detta. Hrufla sig á hverjum steini. Halda, að sárið nái beini. Finna, hvernig hjartað berst, holdið merst og tungan skerst. Ráma allt í einu í Drottin: ,,Elsku Drottinn, núna var ég nærri dottinn! Þér ég lofa því að fara þvílíkt aldrei framar, bara ef þú heldur í mig núna!'' Öðlast lítinn styrk við trúna. Vera að missa vit og ráð, þegar hæsta hjalla er náð. II. Hreykja sér á hæsta steininn. Hvíla beinin. Ná í sína nestistösku. Nafn sitt leggja í tóma flösku. Standa upp og rápa. Glápa. Rifja upp og reyna að muna fjallanöfnin: náttúruna. Leita og finna eitt og eitt. Landslag yrði lítils virði, ef það héti ekki neitt. III. Verða kalt, er kvöldar að. halda seint og hægt af stað. Mjakast eftir mosatónum. Missa hælinn undan skónum. Finna sig öllu taki tapa: Hrapa! Velta eftir urð og grjóti aftur á bak og niðr í móti. Leggjast flatur. Líta við. Horfa beint í hyldýpið. Hugsa sér, að höndin sleppi. Hugsa sér, að steinninn skreppi. Vita urðir við sér taka. Heyra í sínum beinum braka. Deyja, áður en dagur rynni. Finnast ekki einu sinni. IV. Koma heim og heita því að leggja aldrei upp á ný. Dreyma margar næstu nætur hrap í björgum, brotna fætur. Segja löngu seinna frá því ,,Sjáið tindinn, þarna fór ég! Fjöllunum ungur eiða sór ég, enda gat ei farið hjá því, að ég kæmist upp á tindinn. Leiðin er að vísu varla vogandi nema hraustum taugum, en mér fannst bara bezt að fara beint af augum, því hversu mjög sem mönnum finnast fjöllin há, ber hins að minnast, sem vitur maður mælti forðum og mótaði í þessum orðum, að eiginlega er ekkert bratt, aðeins mismunandi flatt. Tómas Guðmundsson Ég held að Tómas hafi verið að klöngrast upp Smjörhnjúk þegar hann samdi þetta ljóð. Svona leið mér nákvæmlega um helgina!!
9月21日 TónleikarÉg ætla að fara á tónleika í kvöld ....
We're back at Hornid, along with the Jazz, Blues and the crazy fun! Please join us on Thursday night, September 21 starting at 9 pm and going until 11:30 pm at Hornid Restaurant (in the basement) for some singin', dancin' and foot-tapping'. The cost is 500 kronur and you can order drinks and food from the restaurant/bar. This cd-making is costly business and all the money we receive at our next few concerts will go towards making our album, so please bring lots of friends with you so you can help us on our way. Seth Sharp Skora á ykkur að mæta ef ykkur langar að heyra alveg frábæran söngvara og upplifa ótrúlega skemmtileg stemningu!! ses 9月19日 TindfjöllJæja þá er byggingarvinna helgarinnar afstaðin - þið getið séð myndir hér til að sjá hvernig gekk og hvað það er fallegt fólk með mér í flugbjörgunarsveitinni!!
Þetta var alveg frábær ferð. Við fengum yndislegt veður á laugardeginum og það er fátt æðislegra en að vera einhversstaðar uppá fjöllum í góðu veðri! Það var að vísu hífandi-rok á sunnudeginum en þó þurrt.
Ég negldi semsé huge-fullt-ofur marga nagla niður, sagaði helling, mældi og merkti! tMér tókst að lemja aðeins einu sinni á þumalputtann á mér (og svo að vísu einu sinni á alla hendina) en það var nú ekkert miðað við fjöldann af nöglum sem ég kom niður! Svo voru aðrir sem börðu mun reglulegar á puttana á sér en ég!
9月15日 Farin á fjöllFarin uppí Tindfjöll að byggja skála ... kreisí stuð! Gangið hægt um gleðinnar dyr börnin góð .... seja senere!
9月9日 Afmæli :DÍ dag á Særún María afmæli!!
Særún er skondin skrúfa sem sífellt gerir sitt besta í að koma vitinu fyrir okkur vinkonurnar. Að undanförnu hefur hún með mikilli þolinmæði rætt um mikilvægi þess að nota dagkrem, næturkrem OG augnkrem daglega, ganga í samstæðum nærfötum, fara í fótabað, nota maska, skúra gólfin og haga sér almennt ekki alltaf eins og asnar.
Í tilefni dagsing ætlum við að vera í viðbragðsstöðu í næstu 24 tímana að stökkva á stað ef hún ákveður að sig langi nú að gera eitthvað skemmtilegt í okkar félagsskap :D
~ TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ~ 9月8日 mmmm nýjar bækur :)Gaman gaman! Ég var að fá í hendurnar bækur sem ég pantaði um daginn á amazon.com fyrir vinnuna :D Alltaf gaman að fá pakka! (p.s. svo á ég bráðum afmæli muniði) Verst að nú langar mig bara heim að lesa.... Þetta eru bækur eftir mann sem heitir Joel Spolsky og er hugbúnaðarsérfræðingur í NY. Hann er bara snillingur. http://www.joelonsoftware.com/ Ein bókin heitir User Interface Design for Programmers, það fyrsta sem ég rak augun í þegar ég opnaði þá bók var þessi klausa: When you design user interfaces, it's a good idea to keep two principles in mind:
Þetta er ótrúlega satt - skil stundum ekki af hverju maður er að vanda sig að setja upp skýr og hnitmiðuð villuskilaboð í kerfum - 97% af notendum nenna ekki að lesa þau heldur ýta default á Enter ef það poppar upp villugluggi!!! Maður gæti eins haft tóman warning-glugga með einum Ok hnapp! Notendur eru algjörir asnar! 9月7日 zzzzzÓ hvað það verður gott í þar næstu viku að geta farið að sofa fyrir miðnætti ... þetta tekur svakalega á að reyna að gera eitthvað af viti svona svakalega syfjaður :|
9月6日 Ó mig auma...þessi óþægilega ógnvægilega lykt sem allaf einkennir þessa staði!
...Séð og Heyrt í stöflum ... vissi ekki að þessi hefðu verið saman, hvað þá þau væru hætt saman!
...hljóðin - íáæó ... fæ sting í kjálkana!
...fullt af allakonar græjum sem mig langar ekki að vita til hvers eru!
...úber-crazy-lampi ... hummm er ekki viss að við eigum þessar perur í Glóey!
...8 ljós með 4 18w flúrosentperur í loftinu .... sennilega litur 33 ... 22W startarar
...2 sprungnar perur - af hverju í veröldinni er ekki skipt um perur á svona stöðum þar sem maður liggur allan tímann og glápir uppí loftið???
...drrrrrrrrrr dssssssssssss ... sortnar næstum fyrir augun við minnstu tilfinningu sem fylgir þessu hræðilega hljóði :|
...yfirmáta ógeðslegt bragð af allskonar einhverjum efnum sem lenda á tungunni á manni!
...get ekki hætt að hreyfa tærnar
...búin að trakka allt útlits-ósamræmi í tölvukerfinu hjá þeim!
...umræður um sykur, hrásykur eða hunang í sultugerð
...hálf lamað andlit og slef sökum deyfingar!
...aha ójá ég fór til TANNLÆKNIS í dag
...og mér er MEINILLA við tannlækna og tannlæknastofur!
...og er nítjánþúsund krónum fátækari
...OG þarf að koma þarna aftur
...óóææ aumingja ég...
9月4日 MánudagurGlúps gleymdi því að ég ætlaði að mæta í vinnuna kl 7.30 í morgun til að fara í jóga með vinnufélögunm :| Rosalega var ég bjartsýn á föstudaginn að hald að ég gæti munað svona nokkuð yfir heila helgi! Set reminder fyrir næsta tíma.
Annars málaði ég 500 fermetra í góða veðrinu í gær! geri aðrir betur.
|
|
|