Elsa Særún's profile~ eLsA sÆrúN ~PhotosBlogListsMore ![]() | Help |
|
April 11 París / ÍsafjörðurMikið ótrúlega er ég duglega að setja eitthvað skemmtilegt hérna inn! Kannski bara ágætis fyrirkomulag að hafa þá reglu að setja inn færslur í kringum jól og páska! Gæti svo hugsanlega bætt við hvítasunnu og verslunarmannhelgi! Það væru nú þó alveg 4 færslur á ári!
Annars er það helst að frétta að þessa dagana stendur yfir skipulagning á Parísarferð - án mín (ekki það að ég treð mér með á alla skipulagsfundi -opinbera sem og óopinbera) verst að ég á engan flugmiða til að troða mér með :(
Ástæða þess að ég á engann flugmiða með stelpunum til Parísar er að ég tók þá afdrifaríku ákvörðun að eyða öllum peningunum, bæði sem ég átti OG átti ekki - í nýjan bíl. Þessi bíll er reyndar mjög fínn og gott að keyra hann en mig langar samt með :'(
Þetta verður örugglega ótrúlega skemmtileg ferð (þó hún nái þvi náttúrulega aldrei til fulls þar sem ég er ekki með)! Þær eru búnar að finna aldeilis margt áhugavert sem þær ætla að skoða og sjá og labba og heyra og Veiga er búin að finna dagbók og gera listaverka-forsíðu til að skrá niður allt það skemmtilega sem hendir þær!
En það er þó smá huggun harmi gegn að þó ég sé ekki á leiðinni til Parísar er ég á leiðinni ÍSAFJARÐAR! og hver þarf París þegar hann hefur Ísafjörð! Þar fæ ég að hitta fullt af skemmtilegum bændum OG halda fyrir þá aldeilis skemmtilegt námskeið OG sofa í líkhúsi OG horfa með strákunum á einhvern æsispennandi Liverpool leik OG síðast en ekki síst kem ég út í plús - þar sem ég verð á dagpeningum - dadarammmdadaramm!
TrackbacksThe trackback URL for this entry is: http://elsasaerun.spaces.live.com/blog/cns!606FB78F5BE4AAB0!844.trak Weblogs that reference this entry
|
|
|