Elsa Særún 的个人资料~ eLsA sÆrúN ~照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
~ eLsA sÆrúN ~8月16日 Afmæli og myndirHún Veiga vísindamaður átti afmæli í gær :) Að því tilefni bakaði hún þessa stjarnfræðilega fínu köku handa vinum sínum! Hún hefur þegar sagt starfi sínu bæði sem jarðvísindakona og kennari lausu og hyggst setja á stofn kökuframleiðslu sem sérhæfir sig í afmælis og tækifæriskökum við öll tilefni.
Til hamingju með daginn í gær Veiga! Svo er ég búin að vera ýkt dugleg að setja inn myndir! Allir að kíkja á fallhlífastökksmyndirnar
4月26日 26.apríl 2007Í gær...
fór ég á sýningu! Nánar tiltekið á sýningu á verkum útskriftanema á listabraut í Borarholtsskóla. Á þessar sýningu kenndi nú ýmissa grasa en uppúr stóð vídeo/leiksýning eftir bróðir minn! Þetta atriði sem var eiginlega leik/vídeo ofið saman samdi hann, útfærði, leikstýrði, tók upp, klippti og fíneseraði alveg sjálfur! Þetta var lang flottasta atriðið enda er bróðir minn er ótrúlega klára og hrikalega flinkur og á pottþétt eftir að verða frægur kvikmyndatökumaður.
Í dag...
er nú aldeilis merkilegur dagur því að í dag eiga tvær góðar vinkonur mínar afmæli!
Til hamingju með daginn Heiða og Freyja!
Kossar&Knús
4月11日 París / ÍsafjörðurMikið ótrúlega er ég duglega að setja eitthvað skemmtilegt hérna inn! Kannski bara ágætis fyrirkomulag að hafa þá reglu að setja inn færslur í kringum jól og páska! Gæti svo hugsanlega bætt við hvítasunnu og verslunarmannhelgi! Það væru nú þó alveg 4 færslur á ári!
Annars er það helst að frétta að þessa dagana stendur yfir skipulagning á Parísarferð - án mín (ekki það að ég treð mér með á alla skipulagsfundi -opinbera sem og óopinbera) verst að ég á engan flugmiða til að troða mér með :(
Ástæða þess að ég á engann flugmiða með stelpunum til Parísar er að ég tók þá afdrifaríku ákvörðun að eyða öllum peningunum, bæði sem ég átti OG átti ekki - í nýjan bíl. Þessi bíll er reyndar mjög fínn og gott að keyra hann en mig langar samt með :'(
Þetta verður örugglega ótrúlega skemmtileg ferð (þó hún nái þvi náttúrulega aldrei til fulls þar sem ég er ekki með)! Þær eru búnar að finna aldeilis margt áhugavert sem þær ætla að skoða og sjá og labba og heyra og Veiga er búin að finna dagbók og gera listaverka-forsíðu til að skrá niður allt það skemmtilega sem hendir þær!
En það er þó smá huggun harmi gegn að þó ég sé ekki á leiðinni til Parísar er ég á leiðinni ÍSAFJARÐAR! og hver þarf París þegar hann hefur Ísafjörð! Þar fæ ég að hitta fullt af skemmtilegum bændum OG halda fyrir þá aldeilis skemmtilegt námskeið OG sofa í líkhúsi OG horfa með strákunum á einhvern æsispennandi Liverpool leik OG síðast en ekki síst kem ég út í plús - þar sem ég verð á dagpeningum - dadarammmdadaramm!
12月20日 jóla jóla jólJeiijj ég er komin í gang með sql-keyrslu sem ég trúi statt og stöðugt að sé lausn á vandamálinu sem er að stoppa mig að yfirgefa vinnuna í dag!! Ég nefnilega er að spá í að eyða smá tíma heima hjá mér til tilbreytingar og taka til! Er búin að koma öllum jólaljósum í gang EN það sést varla í þau fyrir dóti og drasli um alla íbúð :| ... hef hugsað mér að reyna að bæta úr því í kvöld - jólagjafir sem eru enn ókeyptar geta bara beðið!!
Svo í framhaldinu þarf ég að ákveða hvað ég ætla að gefa móðir minni og bróður í jólagjöf! Þau eru staðráðin í því að nánast það eina sem þau langi í OG BRÁÐ-vanti sé nýja Nintendotölvan og nýji Zelda leikurinn :| Þau eru algjör apaspil!
12月4日 Jólunum frestað um vikuKom ekki ljóstýra á hvorki aðventuljósið mitt né stofuseríuna. Sé fátt annað í stöðunni en að fresta fyrsta sunnudegi í aðventu um viku :( |
|
|||||||||||
|
|